11janúar
Já alveg hreint ótrúlegt, hann er snúinn aftur að lyklaborðinu! Ég held að það sé komið um það bil hálft ár síðan ég bloggaði síðast enda hef ég bara engan veginn nennt því og ég hélt alvarlega að þess síða væri að leggjast niður á fjóra fætur og skríða í burtu! Nei grín!
Jæja ég er byrjaður í Menntaskólanum á Akureyri sem örugglega einhverjir hafa tekið eftir! Það er alveg rosalega gaman og ég er búinn að kynnast fullt af öðru skemmtilegu fólki sem er náttúrulega bara snilld !
en jæja ég ætlaði bara að láta vita af mér:D:P
Hafið það gott þeir sem lesa!:D
22apríl
"Það er flott, segðu honum að hann sé Pele og sendu hann aftur inn á." - John Lambie, frkvstj Partick Thistle, þegar honum var sagt að sóknarmaður sem hafði fengið heilahristing vissi ekki hver hann væri.!!
Sorry ég bara varð að setja þetta hérna inn, mér finnst þetta algjör snilld!! Þetta var tekið af spjallborði hjá manutd.is. Þetta er alveg óborganlegt!!:P
En já vaar ég ekki búinn að segjast blogga e-ð meira..?:S Nenni því nú ekki en ætli maður láti sig ekki hafa það!! Já páskafríið er búið, það vara bara fínt sko! 4 fermingar þá! Hjá Brynjari, þar spiluðum við 3 lög. Það gekk nú ágætlega bara..:D Síðan var hjá Sigurdísi, Auði og Laufeyju!! Þetta voru ágætar fermingar bara!! ÐOg ekki vantaði allan góða matinn!!:P Hann var sko góður.
Jabb og það var ball líka um páskana með á Á móti sól! MAgni náttúrulega klikkar ekki..enda músíkkalskur mjög! ég hreinlega elska þennan mann, hann er hreinlega geðveikur söngvari. Mér finnst að hann hefði átt að vinna Rock Star!! Hann er geggjaður!!:D:p
Jæja ég er hættur að tjá mig enda er þetta alveg nóg!!
18apríl
Jújú hin milu undur og stórmerki hafa gerst, ég hef ákveðið að skrifa blogg. Reyndar myndi ég miklu frekar vilja kalla þetta færslu heldur en þetta orð "blogg". Það er bara flottara!
Páskafríið er ný yfirstaðið. Shit hvað það var rólegt maður, að slaka á eftir roslega törn í skólanum. Og í dag var einmitt síðasti skóladagurinn minn í grunnskóla. Semsagt þá þar sem er ekkert próf.
En heyrðu ég er ekki kominn í gírinn þannig ég geri meira seinna!
11mars
Já..á föstudaginn síðasta var stórbingó, takið eftir stórbingó:D!! Það var ágætisselskapur:D Það var bara gott að koma ekkert nálægt þessu! Eitthvað annað en í fyrra! En ég meina það var nú bara gaman! Í bingóferðalaginu gerðust margir hlutir sem ekki fara lengra en á milli lítils hóps! Þar var mikið brallað og brotið!:D Én jáá bingóið! Það var fjör þó maður hafi nú ekki unnið neitt svosem! Enda var það engin nýjung ég hef aldrei nokkurn tímann á minni ævi unnið á bingóinu uppí skóla! Aldrei!!!! Mér finnst þetta ósanngjarnt og ég íhuga verulega að kæra málið til hæstaréttar. Veit þó ekki hvað ég fæ útúr því en lögfræðingar mínir eru komnir í málið. Já maður hitti margt fólk sem maður hafði ekki hitt lengi, það var bara gaman!:D Hugrún var í algjöru flippi á dansgólfinu, er hugsa um að senda hana í einhvern svona listaháskóla til að æfa sig frekar! Mikið efni þar á ferð!!
Síðan fór ég á árshátíðina á Blönduósi. Það var ágætt, geggjuð skemmtiatriði! Rosa skemmtilegt allt saman ! Frændi var náttla bestur skoh! Engin spurning!!!
Jæja ég tel þetta sé gott!!::D:D:D
Goodbye!!!
06mars
Já goðan daginn góðir hálsar!! Núna vil ég að allir sem komi á síðuna commenti!! bara til að tékka hverjir eru að skoða þessa síðu og svona !! Eða bara skrifa í gestabókin..það er nóg langar bara að vita:D:D En já það' er fullt að gerast!! ég er búinn að fá vinnu í Krák í sumar! og þá vantar mig svar ofan úr virkjun og þá er bara að ákveða!!:D Það verður skemmtilegt! En já það er bingó á föstudaginn og´ég hlakka geggjað til þá!! Þá verður sko gaman! En já ég í hreinskilni agt nenni ekki meiru:S Þannig ég segi það gott:D:D
Verið blessuð!!
E.S. munið að kvitta, segið bara eitthvað!!:D
25febrúar
Já þessi vika er búin að vera soldil svona maraþon vika! Maður er endalaust á þeytingi útum allar trissur og getur ekki haldið sig heima eina kvöldstund! Þó er dagurinn í dag eini dagurinn þar sem ég verð alveg heima! Og ég ætla að nýta mér hann til fullnustu:D!!
Á miðvikudaginn þá var öskudagurinn! ég tók þessu létt og fann bara einhverja hluti hérna heima sem ég var svo í! Nennti ekki að finna mér einhvern svaka búning:s En ég meina svona er þetta! Já eftir þetta venjulega, marsera og slá köttinn úr tunnunni, þá var þetta rosalega diskótek fyrir yngstu krakkanna!! Þar var maður alveg á útopnu og dansandi á fullu! En já svo fórum við á æfingu og fengum okkur að borða. En þá byrjaði ballið! Þetta diskótek var "öfugt". Sem sagt þá áttu strákarnir að vera í stelpu fötum og stelpurnar í stráka fötum! Hahaha!!! Djöfull leið mér ógeðslega illa´í þessum fötum! Ég fékk föt lánuð af mömmu og ég held að ég láti aldrei plata mig aftur á svona öfugt ball! En ég var þó í þriðja sæti yfir flottustu skvísuna! Reyndar ekki neitt til þess að vera stoltur af!
Á fimmtudaginn var svo mótið á Laugabakka. Það má segja að við höfum tapað og það stórt, en hverjum er ekki sama þetta er bara leikur! Við vorum samt ekkert arfaslök! Við unnum spurningakeppninaog vorum svona ágæt í frjálsum! Mér reyndar tókst að láta reka mig útaf eftir 6 mínútur! Fékk þrjár villur, það var ógeðslega fúlt!!! En já diskótekið þar var bara nokkuð gott skoh! Reyndar engin sérstök tónlist en samt var eitt lag ágætt sem verður lengi í minnum haft:D Það heitir hot og er með nik og jay! Nokkuð gott danskt rapp lag!! O ég hvet alla sem finna þetta á netinu að læra dansinn!!! Það er mjög mikilvægt atriði!!:D:p
Síðan á föstudaginn þá fór ég á æfingu á Blönduósi og tók smá á!!:D Osvo á laugardaginn þá var skóli!1...En jæja það var nú svosem ágætt!!:D En um kvöldið þá fór fjölskyldan hérna í bænum í Húnaver og í afmælisveislu!! Þar spiluðu nokkrir krakkar og þar var ég á meðal! Benni spilaði með mér gamla Bítla lagið "In my life" ! Alveg ágætis lag svosem:D
En já þetta er fínt bara!!:D
Og hafið það bara gott allir saman!!
19febrúar
Fjandinn hafi það! Það virðist vera mér lífsins ómögulegt að geta skrifað blogg hérna sem ekki er eitthvað vangefið! En ég reyni að gefa mig allan í þetta elskulega blogg!
Jæja Nú fer ldeilis að styttast í íþróttamót sem verður haldið á Laugarbakka þetta árið! Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta mót haldið á milli Laugarbakkaskóla og Húnavallaskóla(besta skóla í heimi, eftir því sem ég hef kynnst!). Þar verður keppt í ýmsu jah svona mátulega skemmtilegu...:s Ég held´að ég keppi í körfubolta og spurningakeppni.. Veit ekki alveg með þessa spurningakeppni, en jájá vona að þetta verði fínt! Síðan komu Laugbakkingar með skrítna keppnisgrein sem á avíst að heita stangarbolti! Þetta var talið mjög skrítið og urðu margir Húnvellingar mjög svo hissa á þessu athæfi! En já,þetta á víst að vera mjög sniðugt, ætli það sé ekki bara það! En já við vorum mjög hissa, þar á meðal var Milan íþróttakennari, sem auðvitað elskar körfubolta og vissi nú ekki alveg hvernig hann átti að bregðast við þessu! Þessi skemmtilegi leikur á víst að vera eitthvað voða líkur brennó, og er það reyndar.. En jæja, það er margt annað hægt að tala um þetta mót! Síðan verður náttla þetta rosa diskótek á Laugarbakka,sem maður hlakkar auðvitað súúúúper mikið til eins og allar skemmtanir!:D:P;)
Öskudagurinn nálgast óðfluga og þar verður nú glatt á hjalla! Maður hefur nú hugsað sér búning en ætli maður hafi sig ekki bara hægan:D Maður var jah svona soldið pólítískur í fyrra! HAHA:D;P Jájá ég tek þessu hreint rólega!
En síðasta föstudag ákvað ég að gerast mjög djarfur og fara heim með Jóni Árna! Eftir skóla þá fórum við á frjálsíþróttaæfingu, sem var hin ágætasta bara, þar var veel tekið á og nokkrir eru strengirnir! (maður hefur gott af þessu). Síðan eftir það þá slóst Gunnar í hópinn með okkur og við fórum uppí Essó og fengum okkur hamborgara eftir átökin! Það var sko gott! En já, á meðan því stóð þá hellti Gunnar tómatsósu á bleiku húfuna hans Jóns og eins og Jón getur verið pjattaður þá þvingaði hann Gunnar til þess að kaupa einhvern hreinsilög í Samkaup. Og Gunnar gerði það! Síðan hreinsuðum við húfuna og fylltum þá brúsann af vatni og hann var seinna um kvöldið mikið notaður í ýmislegt!!;D Eftir þessi átök þá fórum við í reiðhöllina og horfðum á fólk sem var á truntubaki og var að keppa í því! Það var bara ágætt svosem!:D En þá fórum við heim til Jóns Árna og vökuðum aðeins of lengi miðað við að það var skóli daginn eftir. Jáþað var skóladagur á laugardegi. Sumum finnst það skrítið en þetta er útaf verkfalliinu fyrir tveimur árum. Þetta er bara gott finnst mér. Maðúr lærir þá bara eitthvað af þessu:D En maður var alltof þreyttur þann dag! Við fórum að sofa svona um fjögur! En þetta bjargaðist þó maður sé ennþá að jafna sig eftir þetta!
´Jæja ég komst núna í 5. blogg gírinn og tókst nokkuð vel að mínu mati:D Jæja þá kallar Lost og ég kveð ykkur bara núna!! Bæjó!
07febrúar
Já ég ætla aðeins að tjá mig hérna um heimsmeistaramótið í handbolta sem var í Þýskalandi um daginn. Íslendingar voru geggjað góðir og unnu m.a. Frakka og einhverja aðra. Mér fannst þeir allavega geggjað góðir og eiga hrós skilið, það er alls ekki á hverjum dega sem íslenskt landslið er meðal átta bestu þjóða heims í einhverri íþrótt! Eiginlega langt því frá! Og já ég bara fann hjá mér stóra þörf til að setja e-ð hérna inn og tjá mig aðeins..:D
Yfir og út!:P